Samantekt um þingmál

Virðisaukaskattur o.fl.

2. mál á 144. löggjafarþingi.
Fjármála- og efnahagsráðherra.

Markmið

Að einfalda virðisaukaskattskerfið og draga úr neyslustýringu.

Helstu breytingar og nýjungar

Almenna virðisaukaskattsþrepið verður lækkað úr 25,5% niður í 24%. Neðra þrep virðisaukaskatts hækkar úr 7% í 12% og virðisaukaskattsskylda vegna fólksflutninga í afþreyingarskyni (12%) verður tekin upp. Vörugjöld verða aflögð og barnabætur hækkaðar um 1,3 milljarða króna.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og lögum
nr. 90/2003 um tekjuskatt og fella úr gildi lög nr. 97/1987 um vörugjald.

Kostnaður og tekjur

Tekjur ríkissjóðs lækka um 3,7 milljarða kr.

Umsagnir (helstu atriði)

Fjölmargar  athugasemdir bárust og voru skoðanir skiptar um ágæti frumvarpsins.

Afgreiðsla

Frumvarpið var samþykkt eftir töluverðar breytingar þ.á m. var neðra þrepið hækkað í 11% og virðisaukaskattsskyldu vegna fólksflutninga var frestað til 1. jan. 2016.


Síðast breytt 17.12.2014. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.